|
|
09.06.2011 19:30:16 / johanna
Elsku hjartans Haukur okkar í dag er 9. júní og það þýðir að árin eru orðin fimm síðan þú kvaddir þennan heim. Söknuðurinn til þín minkar aldrei. Ég eldaði mér lasgnia til minningar um þig og held ég að mamma og pabbi hafi gert það líka, það var fátt sem þér fanst betra að borða en það. Mömmu var sent þetta fallega ljóð til minningar um þig. Við elskum þig Haukur Kveðja: Jóhanna systir, mamma og pabbi.
í dag er sá dagur er ég syrgi mest man þig minn drengur og
mitt hjarta brest Sorgin hún hjaðnar en minning ey brest að kveðja
ég þurfti drenginn sem ég unni hvað best
Sorgin hún minnir
ár hvert þennan dag sem þú lést eitt ég veit og eitt ég man að í
Guðs hendur ég lagði þann sem Kristur Jésú líka ann
Í hans
faðm ég lagði minn son og sorgina bar ég og hjartað brann Guð þá
hvíslaði að mér hljótt ég líka bar þá sorg að miss son þann sem
situr nú hjá þeim sem þér ann glaður og brosandi honum við hlið
Hvíð
þú eigi móðir góð því sjá hann aftur ég lofa þér. Í mér er
friður, gleði og ró og seinna munt þú fá hann sjá því sonur minn
sem undan fór gaf lífð og sálar ró.
Grát ey meir móðir góð því
þinn sonur nú hvílir hjá mér í ró Drottinn Jesú honum við hlið sorgir
lífsins þar fá engan grið í faðmi föðursins og hjartans frið sonur
þinn hvílist mér við hlið.
»
05.02.2011 15:14:14 / johanna
Það er afmælisdagurinn þinn í dag og afmælisbarnið er ekki lengur hjá okkur. Þú hefðir orðið 29,ára í dag elsku Haukurinn okkar. Að horfa á baráttu þína og geta ekki bjargað þér var erfitt. Við verðum aldrei söm aftur. Við eigum dýrmæta reynslu sem vonandi verður hægt að nýta til góðra verka. Söknuðurinn er sárri en nokkur orð fá lýst og sorgin líka. Stundum hlæjum við með Jóhönnu er við rifjum upp yndislegar stundir með þér, einnig grátum við yfir vanmættinum sem fylgir því að horfa á dauðagöngu fíkilsins og geta ekkert gert. Við hugsum til þess með hryllingi hversu margir eru í þínum sporum og svo ástvinir í okkar sporum.Neyðin er svo mikil og litla sem enga hjálp að fá. Þegar við í fjarska fylgjumst með skólafélögum og öðrum félögum tekur sorgin á sig skrýtna mynd. Gleðin yfir velgengi unga fólksins sem sum hver eru orðnir foreldrar í dag. Bros, en augun full af tárum. Bros vegna ungrar manneskju sem er orðið foreldri og fullorðin og svo sorgin vegna þess að þú færð aldrei þessa drauma uppfyllta. Þú áttir einfaldan draum elsku strákurinn okkar, draum um að vera heilbrigður og að geta unnið, ekki miklar kröfur það. Við spjörum okkur vel enda umkringd góðu fólki. Guð passar vel uppá okkur eins og þú baðst hann svo oft að gera. Vissulega er samt hjartasár sem er komið til að vera, en við höfum það gott í dag. Við höfum eignast nýtt líf. Við gerum eitthvað skemmtilegt á afmælisdaginn þinn í þína minningu og Jóhanna heimsækir gröfina þína. Við komum svo í heimsókn í garðinn þegar við komum til landsins í sumar. Við elskum þig Haukur Freyr, og kveðjum þig að sinni með ljóðinu hans Matthíasar Ægirssonar Kom mitt barn http://www.youtube.com/watch?v=EetnvcBb0Rc Mamma og Hannes pabbi
»
08.06.2009 19:00:35 / johanna
Þann 8.júní árið 2006 vorum hvorki við fjölskyldan þín né löggan búin að hafa uppi á þér og þá hafðiru verið týndur í 8 sólahringa, Tilfinningin um að vita ekkert hvar þú varst og hvort það væri allt í lagi var hrikalega sár. Ég fékk með mér Andra minn og tengdamömmu og þræddum við miðbæinn í leit af þér, við fórum á alla þá staði sem mögulegt væri að þú hefðir komið við á, og loks fékk ég upplýsingar um þig. Ég var komin mjög nálægt, þú varst um það bil 45 min upp í kl tíma á undan mér.
En ég fann þig ekki, heldur gafst upp og fór heim. Morguninn eftir fæ ég símhringingu frá mömmu okkar, Þú varst fundinn.
Tilhugsunin um að ég hefði getað náð þér kvelur mig á hverjum degi, lífið er óbærilegt þessa nokkra daga á ári en aldrei jafn erfitt og núna. Þetta er svo raunverulegt allt í einu, þú ert í alvörunni ekki að fara koma aftur.... það er svo vont elsku bróðir.
Á morgunn rennur svo upp 9. júní sem er dagurinn sem þú fórst á betri stað. Ég veit að þér líður betur og kvelst ekkei lengur og það er vissulega einhver huggun.
Ég fyllist svo mikilli reiði og sorg, því ég missti besta vin minn, trúnaðar vin, bróðir sem var til staðar frá því ég fæðist, leikfélaga í æsku og á vissan hátt smá verndara þ´vi að ekkert mátti koma fyrir litlu systur. Þú varst með mér í gegnum allt lífið.. og við það að missa þig á hvarf stór hluti af mér.
Ég á langt í land með að geta komist í sátt við þetta allt saman.
Ég elska þig Haukur minn.
Kv. Jóhanna systir
»
05.02.2009 21:09:41 / johanna
Elsku Haukur minn, þú hefðir orðið 27 ára í dag ef þú hefðir ekki farið. Þetta er þriðji afmælisdagurinn þinn sem þú ert ekki hjá okkur og það verður sárara og sárara með hverjum deginum að hafa þig ekki. Mig langar svo að fá að taka utan um þig og óska þér til hamingju með daginn að það er að rífa mig í sundur. Ég sakna þín svo að það er nánast óbærilegt mig vanntar þig svo ínn í líf mitt. Það er sagt að tíminn lækni öll sár en það er langt frá því að vera satt elsku bróðir, þetta verður bara mis sárt eftir dögum. Ég elska þig Haukur minn. Kv Jóhanna systir
»
09.02.2008 14:17:28 / johanna
Í tilefni af því að hann Haukur okkar hefði orðið 26 ára þann 5. febrúar ákváðum við fjölskyldan að skella inn texta af uppáhalds laginu hans sem er að sjálfsögðu stuðningslag Liverpool! When you walk through a storm Hold your head up high And don't be afraid of the dark. At the end of the storm There's a golden sky And the sweet silver Song of a lark. Walk on through the wind Walk on through the rain Though your dreams Be tossed and blown. Walk on walk on With hope in your hearts I And you'll never walk alone You'll never walk alone. Walk on walk on Hérna er svo linkur inn á youtube þar sem aðdáendur liverpool syngja lagið. http://youtube.com/watch?v=0nfFi-_Hb2A
»
09.06.2007 09:44:15 / johanna
Við göngum svo sporlétt um fallega grund og gleðjumst
við sólskin og hlýju.
Er dimmir í dalnum við hikum um stund.en göngum mót sólu að
nýju.
Þótt vegferðin langa sé þyrnum stráð, það mæðir og blæs, þú ert
hokinn.
Þá gleymd aldrei því sem var lofað og spáð
AÐ DROTTINN ÞIG SÆKIR VIÐ LOKINN.
Höf. Ásdis.Sig.
Nú er komið eitt ár síðan þú fórst frá okkur heim til Drottins
Haukur minn. Við vorum búin að gera með okkur samkomulag um að
þegar þú værir búin að ná tökum á veikindum þínum og búin að vera
edrú í eitt á yrði slegið upp veislu. Og það yrði keypt Liverpool
kaka hjá Jóa Fel. Þú baðst sérstaklega um að hún yrði keypt hjá
honum af því að þú hafðir heyrt að hann héldi með Manchester. Og
þér fannst svo fyndið að láta hann gera kökuna. Núna ertu búinn að
vera edrú í eitt ár en það verður engin Liverpoolkaka. En í staðin
færðu þetta yndislega ljóð sem hún Ásdis var svo góð að tileinnka
þér. Svona var lífið þitt síðustu fimm árin þín. Dimmir dalir en þú
reyndir að ganga mót sólu að nýju. Alltaf styttust sólardagarnir
þínir og dimmu dögunum fjölgaði. Síðustu tvö árin þín voru góðu
dagarnir afar fáir og engin lausn á þínum veikindum sjáanleg.
Lausnin og lækningin er til en þú fékst ekki aðgengi að þeirri
hjálp sem þú þurftir. Við fjölskyldan þín erum í svo miklum sárum
og söknuðurinn eftir þér nánast óbærilegur. Á hverjum degi tölum
við um þig, tölum um góðu tímana, húmorinn þinn sem var allveg
einstakur. Og þegar þú og Halli vinur þinn komuð saman var grátið
úr hlátri allann tímann. Vitleysan sem valt uppúr ykkur var allveg
óborganlega fyndinn. Svo hringdi Halli í mig um daginn. Hann var að
fara í draumaferðina sem þið vinirnir ætluðuð að fara saman. Á
Liverpool leik. Hann saknar þín ekkert minn en við hin. Þegar þú
hefðir orðið 25 ára þann 5 febrúar síðastliðin hringdu nokkrir
vinir þínir í mig. Það var yndislegt að þeir skyldu gera það en
samt svo sárt. Við höfum verið að fara í gegnum gamlar myndir af
þér og erum byrjuð að púsla saman myndaalbúmi tileinkuðu þér. Það
er svo ljúf sárt. Góðar minningar streyma fram. Og bara við að
horfa á sjónvarpið vakna minningar. Eins og þegar
alheimsfegurðardrottningin okkar datt í fyrra. Það var síðasta
hláturskastið okkar saman. Hláturinn þinn var svo smitandi að oft
hlógum við meira af hlátrinum og tilburðunum við að lýsa atvikum en
atvikinu sjálfu. Sem betur fer er til myndband af þér sem var tekið
tæpu ári áður en þú lést. Þar getum við heyrt hláturinn þinn og
röddina þína. Oft spurðir þú okkur að því hvernig við gætum staðið
í þessari baráttu fyrir þig. Þú gast það ekki sjálfur svo við
gerðum það fyrir þig. Veikindi þín voru orðin svo mikil síðustu tvö
árin. Við elskum þig svo mikið. Að horfa á þig svona veikann var
eins og Hrafnhildur uppáhalds frænkan þín lýsti svo vel. Það var
eins og að horfa á þig drukkna. Við synntum að þér og héldum þér
uppi þar til við örmögnuðumst öll. Létum þig hafa björgunarhringi
sem þú gast ekki vegna veikinda þinna nýtt þér og sumir voru
hreinlega teknir af þér. Oft höfum við verið spurð að því hvernig
komuðst þið í gegnum þetta? Svarið við því er einfalt og er
þetta:
Mig dreymdi mikinn draum: Ég stóð
með Drottni háum tindi á
og horfði yfir lífs míns leið,
hann lét mig mitt hvert fótspor sjá.
Þau blöstu við. Þá brosti hann.
,, Mitt barn"hann mælti, ,,sérðu þar,
ég gekk með þér og gætti þín,
í gleði og sorg ég hjá þér var.
Þá sá ég fótspor frelsarans
svo fast við mín á langri braut.
Nú gat ég séð hvað var mín vörn
í voða,freistni,raun og þraut.
En annað sá ég síðan brátt:
Á sumum stöðum blasti við
að sporin voru aðeins ein.
-Gekk enginn þá við mína hlið?
Hann las minn hug. Hann leit til mín
og lét mig horfa í augu sér:
Þá varstu sjúkur blessað barn,
á bar ég þig á herðum mér.
Hr. Sigurbjörn Einarssor orti úr gamalli
sögn
Minning þín lifir með okkur elsku Haukur okkar. Við
elskum þig. Mamma og Hannes pabbi.
»
01.06.2007 22:05:18 / johanna
Við göngum
svo sporlétt um fallega
grundog gleðjumst við sólskin og
hlýju. Er dimmir í dalnum við hikum
stund, en göngum mót sólu að
nýju. Þótt vegferðin langa sé þyrnunum
stráð,það mæðir og blæs, þú ert
hokin. Þá gleymd aldrei því sem var lofað og
spáð,að Drottinn þig sækir við
lokin.
höf: Ásdís
Við þökkum Ásdísi fyrir þetta fallega ljóð sem hún tileinkaði
Hauki.
»
05.02.2007 08:48:59 / johanna
Í dag er 5 febrúar og þú hefðir orðið 25 ára ef þú hefðir lifað
elsku strákurinn minn.Við fjölskyldan þín erum búin að vera að
rifja upp síðustu afmælisdagana þína.Þegar þú varðst 18 ára og
nýkominn frá Hvítárbakka var síðasti afmælisdagurinn þinn sem við
héldum uppá heima.Þú fékst langþráða Liverpoolköku og það var mjög
gaman hjá okkur.Ekki grunaði mig að næstu 5 afmælisdagar
þínir yrðu inni á sjúkrahúsi.Á síðasta afmælisdegi þínum vorum við
samála um að þetta yrði síðasti afmælisdagur þinn inni á sjúkrahúsi
en ekki óraði mig fyrir því að ástæðan væri sú að þú mundir
vera dáinn heldur værir þú loksins búinn að fá þá hjálp sem þú
þurftir að fá.En það varð ekki svo og 9 júní síðastliðinn lauk þínu
erfiða og kvalafulla lífi.Ekkert foreldri ætti nokkurn tíma að
þurfa að standa við gröf barns síns,það er svo skakkt.Það líður
ekki sá dagur að þú sért ekki í huga mínum meira og minna.Flest
minnir á þig.Ákveðnar auglýsingar,íþróttaviðburðir,orðatiltæki og
ekki síst Band of brothers sem er svo oft sýnt á National Giograpic
það voru þínir uppáhalds þættir.Söknuðurinn eftir þér er svo mikill
og sár að það svíður í hjartað alla daga.En Drottinn er miskunsamur
og hann leysti þig undann þessu kvalafulla lífi sem þú lifðir og
það er örlítil huggun að þurfa ekki að horfa uppá það lengur.En
auðvitað hefði ég kosið að þú hefðir fengið þá hjálp sen þú þurftir
svo mikið á að halda og ættir heilbrigt líf í dag.En þú ert
heilbrigður heima hjá Drottni og þið vinirnir og nafnar Haukur
Kristófers eruð samann í dýrð Drottins og bíðið eftir okkur
hinum.Ég sagði við prestinn okkar um daginn að hann Haukur minn er,
hann var ekki ,hann er ,og verður ávallt.Elsku strákurinn minn til
hamingju með afmælið þitt.
Efusus 6 kafli vers 10-20.
Að lokum  tyrkist þú í Drottni í krafti máttar hans.Klæðist alvæpni
Guðs til þess að þér getið staðist vélabrögð djöfulsins.Því að
baráttan,sem vér eigum í ,er ekki við menn af holdi og blóði,heldur
við tignirnar og völdin,við heimsdrottna þessa myrkurs,við
andaverur vonskunnar í himingeimnum.Takið því alvæpni Guðs,til þess
að þér getið veitt mótstöðu á hinum vonda degi og haldið
velli,þegar þér hafið sigrað allt.
Standið því gyrtir sannleika um lendar yðar og klæddir brynju
réttlætis og skógaðir fúsleik til að flytja fagnaðarboðskap
friðarinns.Takið umfram alltskjöld trúarinnar,sem þér getið slökkt
með öll hin eldlegu skeyti hinns vonda.Takið við hjálmi
hjálpræðisins og sverði andans,sem er Guðs orð.Gjörið það með bæn
og beiðni og biðjið á hverri tíð í anda.Verið því árvakrir og
staðfastir í bæn fyrir öllum heilögum.Byðjið fyrir að mér verði
gefin orð að mæla,þá er ég lýk upp munni minum,til að ég kunngjöri
með djörfung leyndardóm fagnaðarerindisins.Þess boðberi er ég í
fjötrum mínum.Biðjið, að ég geti flutt það með djörfung,eins og mér
ber að tala.
Þetta ásamt sálmi 143 voru uppáhalds lesningar þínar í
Biblíunni.Kveðja mamma.
»
11.01.2007 14:13:12 / johanna
Jæja loksins eru komnar myndir inn á síðuna, Þetta eru myndir frá
því að Haukur var í byrginu sumarið 2005. Fleiri eiga eftir að
koma.
»
11.01.2007 14:11:55 / johanna
Andlát Hauks Freys var ekki sjálfsvíg eða of stór skammtur heldu
var banamein hans morfíneitrun.
»
14.06.2006 19:06:43 / johanna
Ekkert hafði heyrst í Hauk síðan 1.
júní og var auglýst eftir honum bæði í blöðum og sjónvarpi og
var lögreglan einnig að leita hans.Hann fannst látinn að
morgni föstudagsins 9. júní á horni Klapparstígs og
Skúlagötu.
Hann hafði ekki verið látinn lengi en talið er að hann
hafði ekki verið látinn í lengur en tólf tíma þegar hann komst í
leitirnar.
Þetta var ekki sársaukafullt andlát en talið er að
það hafi verið of stór skammtur samt sem áður ekki
sjálfsvíg.
Jarðaförinn verður fimmtudaginn 15. júní kl 15:00 í
Grafarvogskirkju. Hann verður svo jarðaður í
Gufuneskirkjugarði.
Kransar og blóm eru
afþakkaðir.
»
|
|